Dynjandisheiði og Bíldudalsvegur - tillaga að matsáætlun
Vegagerðin hefur sent Skipulagsstofnun til ákvörðunar tillögu að matsáætlun varðandi framkvæmdina Vestfjarðavegur (60) um Dynjandisheiði og Bíldudalsvegur (63) frá Bíldudalsflugvelli að Vestfjarðavegi á Dynjandisheiði, í Vesturbyggð og Ísafjarðarbæ, í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.
Fyrirhugað er að
endurbyggja Vestfjarðaveg (60) um Dynjandisheiði, á kafla sem nær frá Hörgsnesi
í Vatnsfirði, langleiðina að Mjólkárvirkjun í Borgarfirði. Einnig er fyrirhugað
að endurbyggja Bíldudalsveg (63) á kafla sem nær frá Bíldudalsflugvelli á
Hvassnesi að Vestfjarðavegi í Helluskarði á Dynjandisheiði. Framkvæmdin er í
tveimur sveitarfélögum, Vesturbyggð í Vestur-Barðastrandarsýslu og Ísafjarðarbæ
í Vestur-Ísafjarðarsýslu. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur milli
sunnan- og norðanverðra Vestfjarða. Hún ásamt
Dýrafjarðargöngum er lokahnykkurinn við gerð heilsárshringvegar um Vestfirði.