Kynningargögn

Dagverðareyrarvegur (816) - Hringvegur-Helluland

Kynning framkvæmda

19.3.2008

Vegagerðin fyrirhugar að endurbæta um 4,5 km langan vegarkafla á Dagverðareyrarvegi (816) milli Hringvegar og Hellulands í Hörgárbyggð í Eyjafirði. Núverandi vegur er burðarlítill malarvegur og miða endurbæturnar að því að styrkja hann og leggja á hann bundið slitlag.

Endurbyggður vegur verður af vegtegund C2, sem er 6,5 m breiður vegur. Hönnunarhraði er 80-90 km/klst. nema fyrstu 1,5 km næst Hringvegi þar sem hönnunarhraði verður 70 km/klst.

Áætlað er að framkvæmdir hefjist vorið 2008 og þeim verði að fullu lokið fyrir 1. ágúst 2008.

Framkvæmdin telst ekki matskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.

Vegagerðin telur að framkvæmdin hafi fremur lítil umhverfisáhrif nema hvað varðar bætt umferðaröryggi vegfarenda.

Kynningarskýrsla

Grunnmynd 1/3

Grunnmynd 2/3

Grunnmynd 3/3