Kynningargögn

Náma E-41 á Fljótsheiði í Þingeyjarsveit.

 Kynning á efnistöku.

18.5.2015

Náma Fljótsheiði - úr kynningarskýrsluVegagerðin hefur tilkynnt Skipulagsstofnun um efnistöku úr opinni námu á Fljótsheiði þar sem fyrirhugað er að taka allt að 149.900 m3 af efni á allt að 49.900 m2 svæði. Náman er lögð fram í samráði við Þingeyjarsveit því gera þarf óverulega breytingu á Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2010-2022 vegna hennar.


Framkvæmdin er tilkynnt til Skipulagsstofnunar í samræmi við  6. gr. laga nr.106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum. Meðfylgjandi er greinargerð með nánari upplýsingum um framkvæmdina og um ástæður fyrirhugaðrar efnistöku.