Vestfjarðavegur (60) milli Bjarkalundar og Skálaness
Vegagerðin tilkynnir hér með 19,9-22,0 km langa vegagerð á Vestfjarðavegi milli Bjarkalundar og Skálaness við norðanverðan Breiðafjörð, framkvæmd sem fellur undir 5. gr. laga nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum. Frummatsskýrsla um mat á umhverfisáhrifum, sú sem hér er kynnt, hefur verið send Skipulagsstofnun. Stofnunin kynnir framkvæmdina og frummatsskýrsluna með auglýsingum auk þess sem hún mun liggja frammi til kynningar til 8. desember á bæjarskrifstofu Reykhólahrepps, Hótel Bjarkalundi, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Sjá hér að neðan hvert senda skal athugasemdir.
Framkvæmdin er í sveitarfélaginu Reykhólahreppi í Austur-Barðastrandarsýslu. Um er að ræða nýjan veg í stað vegar sem liggur frá Bjarkalundi, fyrir botn Þorskafjarðar, yfir Hjallaháls, fyrir botn Djúpafjarðar, yfir Ódrjúgsháls og fyrir botn Gufufjarðar að Skálanesi við vestanverðan Þorskafjörð. Á leiðinni eru fjórar einbreiðar brýr og brattir, krókóttir og snjóþungir kaflar eru um Hjallaháls og Ódrjúgsháls. Um er að ræða seinasta vegarkaflann sem lagður er malarslitlagi á leiðinni milli Reykjavíkur og þéttbýlisstaða á sunnanverðum Vestfjörðum. Núverandi vegur er 41,6 km langur en nýr vegur verður 19,9 - 22,0 km langur, háð leiðarvali.
Vegagerðin leggur fram fimm leiðir til athugunar hjá Skipulagsstofnun, leiðir A1, D2, H1, I og Þ-H. Þær falla saman á köflum. Við framkvæmdina verða byggðar brýr yfir Þorskafjörð, Djúpafjörð og Gufufjörð, háð leiðarvali. Brýr eru mislangar, háð legu vegarins, en lengstu brýrnar eru á leið A1, eða samtals 1.344 m. Stystu brýrnar eru á leið D2, eða samtals 330 m langar. Leiðir D2 og H1 eru jarðgangaleiðir, á leið D2 eru 4,5 km löng jarðgöng og á leið H1 eru 4,1 km löng göng. Framkvæmdin mun ganga undir heitinu: Vestfjarðavegur (60) milli Bjarkalundar og Skálaness.
Framkvæmdaaðili er Vegagerðin og hefur Vestursvæði Vegagerðarinnar umsjón með fyrirhugaðri framkvæmd.
Umsagnir og athugasemdir við frummatsskýrslu skal senda til Skipulagsstofnunar hér skipulag@skipulag.is.
Frestur almennings til að skila inn umsögnum og athugasemdum við frummatsskýrsluna er til 8. desember 2016.
Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Frummatsskýrsla
Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes samantekt frummatsskýrslu
Teikningar:
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Teikning 1-5
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Teikning 6
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Teikning 7
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Teikning 8
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Teikning 9
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Teikning 10
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Teikning 11
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Teikning 12
Viðaukar:
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 1
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 2
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 3
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 4
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 5
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 6
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 7
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 8
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 9
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 10
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 11
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 12
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 13
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 14
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 15
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 16
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 17
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 18
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 19
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 20
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 21
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 22
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 23
- Vestfjarðavegur Bjarkalundur - Skálanes Viðauki 24