Frummatsskýrslur
  • Breikkun Vesturlandsvegar framkvæmdasvæði
    Breikkun-Vesturlandsvegar

Breikkun Vesturlandsvegar (1 f5-f7) - frummatsskýrsla

21.2.2020

Vegagerðin hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum vegna breikkunar Vesturlandsvegar á 9 km kafla milli Varmhóla og vegamóta Hvalfjarðarvegar. Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir. Kynningartími er frá 24. febrúar til 7. apríl 2020. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 7. apríl 2020 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.

Vegagerðin, í samráði við Reykjavíkurborg, áformar breikkun Vesturlandsvegar. Um er að ræða breikkun Vesturlandsvegar í 2+1 veg ásamt gerð þriggja hringtorga, þ.e.a.s. við Móa, Grundarhverfi og Hvalfjarðarveg. Samhliða breikkuninni verður vegtengingum fækkað og í staðinn gerðir hliðarvegir ásamt reiðstígum og stígum fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Heildarlengd hliðarvega er um 11,7 km, þar af verða lagðir um 9,8 km af nýjum hliðarvegum. Vegurinn liggur um Kjalarnes, fámennasta hverfi Reykjavíkur. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur og auka umferðaröryggi vegfarenda.

Frummatsskýrsla þessi fjallar um mat á umhverfisáhrifum vegna breikkunar Vesturlandsvegar.
Tilgangur frummatsskýrslu er að leggja mat á umhverfisáhrif fyrirhugaðrar framkvæmdar og að veita
almenningi, umsagnaraðilum og öðrum hagsmunaaðilum tækifæri til að mynda sér skoðun á
efnistökum umhverfismatsins og koma athugasemdum á framfæri.

Vegagerðin boðar til opins húss í Klébergsskóla Kollagrund 2, 116 Kjalarnesi, fimmtudaginn 27. febrúar n.k. milli kl. 16.00 og 18.00, þar sem frummatsskýrslan verður til kynningar. Gefst gestum tækifæri til að spyrja út í hana og væntanlegar framkvæmdir. Fulltrúar Vegagerðarinnar verða á staðnum. Boðið verður uppá léttar kaffiveitingar

Frummatsskýrslan