Auglýst útboð
Yfirborðsmerkingar, vegmálun 2013-2014
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirborðsmerkingu akbrauta með málningu, árin 2013-2014. Um er að ræða málun á öllum svæðum Vegagerðarinnar.
Helstu magntölur, miðað við tvö ár, eru:
| Flutningur vinnuflokks | 1.000 | km |
| Málaðar miðlínur | 2.600.000 | m |
| Málaðar kantlínur | 1.200.000 | m |
| Biðskylduþríhyrningar | 1.000 | stk. |
| Þrengingarmerki við einbreiðar brýr | 160 | stk. |
Verki skal að fullu lokið 1. september 2014.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með fimmtudeginum 28. febrúar 2013. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. mars 2013 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

