Auglýst útboð
Landvegur (26), Galtalækjarskógur - Þjófafossvegur
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu 7,5 km Landvegar frá Galtalækjarskógi að Þjófafossvegi, ásamt útlögn klæðingar.
Helstu magntölur eru:
| Efnisvinnsla | 20.725 | m3 |
| Fylling | 4.810 | m3 |
| Fláafleygar | 2.930 | m3 |
| Neðra burðarlag | 13.710 | m3 |
| Efra burðarlag | 7.015 | m3 |
| Ræsi | 72 | m |
| Tvöföld klæðing | 54.680 | m2 |
| Frágangur fláa | 47.025 | m2 |
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2013.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 22. janúar 2013. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. febrúar 2013 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

