Auglýst útboð

Álftanesvegur (415), Hafnarfjarðarvegur – Bessastaðavegur

7.8.2012

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð Álftanesvegar (415), milli Hafnarfjarðarvegar og Bessastaðavegar. Verkið felst í því að leggja nýjan 4 km langan veg frá Engidal að Fógetatorgi við Bessastaðaveg. Gera skal mislæg gatnamót ásamt að- og fráreinum við Hraunsholt í Engidal og byggja tvenn göng fyrir gangandi umferð. Breyta skal legu strengja, vatns- og hitaveitulagna. Þá á að leggja nýja háspennu- og rafdreifistrengi, síma-, vatns-, og hitaveitulagnir. Einnig fylgir með í verkinu landmótun, sáning og yfirborðsjöfnun hrauns innan verksvæðisins.

Helstu magntölur eru:

Bergskering 70.000 m3
Fylling og fláfleygar 72.000 m3
Neðra burðarlag 25.000 m3
Efra burðarlag 12.000 m3
Malbik 52.500 m2
Gangstígar 9.000 m2
Mótafletir 2.700 m2
Steypustyrktarstál 87.000 kg
Steinsteypa 1.120 m3
Eftirspennt járnalögn 5.300 kg
Hitaveitulagnir 346 m
Fjarskiptalagnir 4000 m
Rafstrengir 6740 m

Verkið skiptist í 3 verkáfanga og skal verkinu að fullu lokið eigi síðar en 1. júlí 2014.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með miðvikudeginum 8. ágúst 2012. Verð útboðsgagna er 10.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. september 2012 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag

Verkið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.



Útlit síðu: