Auglýst útboð
Mjóafjarðarferja 2012 – 2015
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í siglingar með fólk og vörur á milli Mjóafjarðar og Neskaupstaðar árin 2012-2015. Þjónustan er veitt yfir vetrarmánuðina eða tímabilið frá 1. október til og með 31. maí.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði frá og með mánudeginum 30. júlí 2012. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. ágúst 2012 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

