Auglýst útboð
Borgarfjarðarbraut (50), vegagerð um Reykjadalsá
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í ný- og endurlögn á 2,2 km kafla Borgarfjarðarbrautar (50) og Hálsasveitarvegar (518) við Reykjadalsá.
Helstu magntölur eru:
| Fylling | 26.000 | m3 |
| Fláafleygar | 5.100 | m3 |
| Skeringar | 2.400 | m3 |
| Ræsalögn | 102 | m |
| Neðra burðarlag | 9.900 | m3 |
| Efra burðarlag | 3.900 | m3 |
| Tvöföld klæðing | 17.000 | m2 |
| Fláar/rás | 24.200 | m2 |
Verkinu skal að fullu lokið 15. júlí 2013.
Útboðsgögnin verða seld hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 30. júlí 2012.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. ágúst 2012 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

