Auglýst útboð
Ræsi í Dýralæki á Mýrdalssandi
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í útlögn fimm stórra ræsa ásamt steypu í botn ræsanna, frágangi og útlögn klæðingar, í Dýralæki á Mýrdalssandi austan Víkur.
Helstu magntölur eru:
| Ræsi (D300) | 135 | m |
| Steypa í botn ræsa | 75 | m3 |
| Skeringar | 1.150 | m3 |
| Fylling | 600 | m3 |
| Burðarlag | 300 | m3 |
| Tvöföld klæðing | 1.900 | m2 |
| Grjótvörn | 280 | m3 |
| Frágangur fláa | 2.105 | m2 |
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. október 2012.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 16. júlí 2012. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 31. júlí 2012 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.
