Auglýst útboð
Villingaholtsvegur (305), 2012
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu 5,3 km Villingaholtsvegar frá Gaulverjabæjarvegi að Ragnheiðarstöðum, ásamt útlögn klæðingar.
Helstu magntölur eru:
| Neðra burðarlag | 10.280 | m3 |
| Fláafleygar | 5.130 | m3 |
| Efra burðarlag | 4.905 | m3 |
| Tvöföld klæðing | 37.840 | m2 |
| Frágangur fláa | 31.190 | m2 |
Verkinu skal að fullu lokið 15. ágúst 2012.
Útboðsgögnin verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 31. janúar 2012. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 14. febrúar 2012 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

