Auglýst útboð
Reykjanesbraut (41), undirgöng við Straumsvík
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð undirganga undir Reykjanesbraut við Straumsvík ásamt tilheyrandi vegagerð. Verkið felst einnig í gerð bráðabirgðavegar auk færslu og endurnýjunar á lögnum. Undirgöngin verða 9 m breið og um 23 m löng og unnið verður við alls um 1,7 km af vegum.
Helstu magntölur eru:
| Bergskering | 9.400 | m3 |
| Skering, fylling og fláafleygar | 30.000 | m3 |
| Burðarlag | 5.000 | m3 |
| Malbik | 14.300 | m2 |
| Ljósastaurar | 26 | stk. |
| Steypumót | 1.075 | m2 |
| Járnalögn | 37.400 | kg |
| Steypa | 365 | m3 |
Verkinu skal að fullu lokið 1. júlí 2012.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 31. október 2011. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 15. nóvember 2011og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

