Vetrarþjónusta 2010 – 2013, Raufarhafnarvegur – Fell
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu í N - Þingeyjarsýslu árin 2010 – 2013 á eftirtöldum leiðum:
Norðausturvegur (85), Raufarhafnarvegur – Fell í Finnafirði 61 km
Langanesvegur (869), Norðausturvegur – Flugvallarvegur 2 km
Flugvallarvegur (871), Langanesvegur – Flugvöllur 0,5 km
Helstu magntölur á ári eru :
Færðargreining á smábíl 15.000 km
Vörubílar í snjómokstri, hálkuvörn og vinnu með undirtönn 24.000 km
Vinna með veghefli 130 klst.
Biðtími manns 220 klst.
Verkinu skal að fullu lokið 30. apríl 2013.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 Reykjavík (móttaka) frá og með 23. ágúst 2010. Verð útboðsganga er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. september 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.
