Auglýst útboð

Styrkingar og endurbætur á Ásvegi (275) og Kálfholtsvegi (288)

9.8.2010

 

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í styrkingu og lögn klæðingar á Ásveg (275) og Kálfholtsveg (288) í Ásahreppi. Samtals er um að ræða 4,5 km.

Helstu magntölur eru:

Neðra burðarlag 7.275 m3
Fláafleygar 6.600 m3
Efra burðarlag 2.890 m3
Klæðing  20.930 m2
Frágangur fláa 28.695 m2

Verki skal að fullu lokið fyrir 15. júní 2011.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 9. ágúst 2010. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. ágúst 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.



Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica