Auglýst útboð
Styrkingar og endurbætur á Laugarvatnsvegi (37), Skillandsá– Hólabrekka
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í breikkun og styrkingu á 4,4 km löngum kafla Laugarvatnsvegar (37), frá Skillandsá að Hólabrekku.
Helstu magntölur eru:
| Fylling | 7.200 | m3 |
| Fláafleygar | 9.915 | m3 |
| Neðra burðarlag | 8.800 | m3 |
| Efra burðarlag | 5.900 | m3 |
| Ræsi | 48 | m |
| Þurrfræsun | 29.000 | m2 |
| Tvöföld klæðing | 35.995 | m2 |
| Frágangur fláa | 42.575 | m2 |
Verki skal að fullu lokið fyrir 15. júní 2011.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 9. ágúst 2010. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. ágúst 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

