Auglýst útboð
Efnisvinnsla á sunnanverðum Vestfjörðum 2010
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í efnisvinnslu á sunnanverðum Vestfjörðum 2010.
Malað verður í 3 námum alls 9.500 m3 af malarslitlagsefni.
Verki skal að fullu lokið 15. október 2010.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Dagverðardal á Ísafirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 26. júlí 2010. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 10. ágúst 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.
