Auglýst útboð
Vetrarþjónusta 2010 – 2013 Djúpvegur (61), Vestfjarðavegur í Reykhólasveit – Reykjanes
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu á Djúpvegi (61) milli Vestfjarðavegar í Reykhólasveit og Reykjaness í Ísafjarðardjúpi .
Helstu magntölur á ári eru:
Snjómokstur og hálkuvörn með vörubíl 43.125 km
Verktími er frá 1. október 2010 til og með 31. maí 2013.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Dagverðardal á Ísafirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 20. júlí 2010. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 4 . ágúst og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

