Auglýst útboð
Styrkingar og endurbætur á Biskupstungnabraut (35), Þórisstaðir – Brúará
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í breikkun og styrkingu á 4,7 km löngum kafla Biskupstungnabrautar (35), frá Þórisstöðum að Brúará.
Helstu magntölur eru:
| Fylling |
11.100 |
m3 |
| Fláafleygar |
13.200 |
m3 |
| Neðra burðarlag |
10.500 |
m3 |
| Efra burðarlag |
6.300 |
m3 |
| Ræsi |
141 |
m |
| Þurrfræsun |
31.000 |
m2 |
| Tvöföld klæðing |
34.000 |
m2 |
| Frágangur fláa |
51.400 |
m2 |
Verki skal að fullu lokið fyrir 15. júní 2011.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 19. júlí 2010. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 4. ágúst 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.
