Auglýst útboð
Vetrarþjónusta 2010-2013, Hringvegur (1), Höfn – Öræfi
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreiðum, ásamt upplýsingagjöf, á Hringvegi (1), frá Höfn í Hornafirði að sýslumörkum Vestur-Skaftafellssýslu á Skeiðarársandi.
Helstu magntölur, á ári, eru:
Snjómokstur og hálkuvörn með vörubílum 9.650 km
Verktími er frá 15. október 2010 til og með 15. maí 2013.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði og í Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 5. júlí 2010.
Verð útboðsgagna 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. júlí 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.
