Auglýst útboð
Vetrarþjónusta 2010 - 2013, Siglufjarðarvegur
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vetraþjónustu á Norðvestursvæði á eftirtöldum leiðum:
Sauðárkróksbraut (75), Sauðárkrókur - Narfastaðir 14 km
Siglufjarðarvegur (76), Narfastaðir - Siglufjörður 80 km
Hólavegur (767), 11 km
Helstu magntölur á ári eru:
Snjómokstur og hálkuvörn með vörubílum 33.083 km
Vörubílstjórar í biðtíma 50 klst.
Verki skal að fullu lokið 30. apríl 2013.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgarsíðu 8 á Sauðárkróki og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 5. júlí 2010. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 20. júlí 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

