Auglýst útboð
Vetrarþjónusta 2010 - 2013, Hvammstangi - Blönduós
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu á Norðurlandi vestra á eftirtöldum leiðum:
Hvammstangavegur (72), Hvammstangi – Blönduós 5,0 km
Hringvegur (1), Hvammstangi – Blönduós 52,9 km
Helstu magntölur, á ári, eru:
Snjómokstur og hálkuvörn með vörubíl 12.319 km
Verki skal að fullu lokið 30. apríl 2013.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 5. júlí 2010. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. júlí 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

