Auglýst útboð
Hringvegur (1), Hnausakvísl – Stóra-Giljá
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í styrkingu og breikkun Hringvegar á um 5,68 km löngum kafla frá Hnausakvísl að Stóru-Giljá.
Helstu magntölur eru:
| Skering | 18.100 | m3 |
| Fylling | 9.800 | m3 |
| Fláafleygar | 12.200 | m3 |
| Ræsalögn | 116 | m |
| Endafrágangur ræsa | 16 | stk. |
| Neðra burðarlag | 10.200 | m3 |
| Efra burðarlag | 8.000 | m3 |
| Tvöföld klæðing | 48.500 | m2 |
Breikkun vegfyllinga og neðra burðarlags auk lengingu ræsa skal lokið 15. nóvember 2010.
Lagningu klæðingar skal lokið fyrir 29. júní 2011
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. júlí 2011.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi, Borgarsíðu 8 á Sauðárkróki og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með mánudeginum 5. júlí 2010. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. júlí 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

