Auglýst útboð
Ræsi í Flóahreppi 2010
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð fimm ræsa í Flóahreppi, þar af þriggja stórra þar sem fjarlægja þarf einbreiðar brýr.
Helstu magntölur eru:
| Fylling | 1.820 | m3 |
| Ræsalögn | 150 | m |
| Burðarlag | 2.290 | m3 |
| Malarslitlag | 430 | m3 |
Verkinu skal að fullu lokið 1. nóvember 2010.
Útboðsgögnin verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með mánudeginum 28. júní 2010. Verð útboðsgagna er 4.000 krónur.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 13. júlí 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

