Vetrarþjónusta 2010 – 2013, Eyjafjörður að vestan
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu á Eyjafjarðarsvæðinu árin 2010 – 2013 á eftirtöldum leiðum:
Hringvegur(1), Fremri-Kot Norðurárdal – Akureyri 61 km
Ólafsfjarðarvegur(82), Hringvegur(1) - Ólafsfjörður 48 km
Svarfaðardalsvegur(805), Ólafsfjarðarvegur – Tunguvegur 11 km
Tunguvegur(806), Svarfaðardalsvegur – Skíðadalsvegur 1 km
Skíðadalsvegur(807), Tunguvegur - Ólafsfjarðarðarvegur 10 km
Árskógssandsvegur(808), Ólafsfjarðarvegur – Árskógsandur 2 km
Hauganesvegur(809), Ólafsfjarðarvegur – Hauganes 2 km
Hjalteyrarvegur(811), Ólafsfjarðarvegur - Hjalteyri 3 km
Helstu magntölur á ári eru :
Færðargreining, bíll: 5.650 km
Vörubílar í snjómokstri, hálkuvörn og vinnu með undirtönn: 91.250 km
Biðtími vélamanns: 260 klst.
Verkinu skal að fullu lokið 30. apríl 2013.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með 28. júní 2010. Verð útboðsganga er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 13. júlí 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.
