Auglýst útboð
Múlavegur í Fljótsdal (934), Langhús-Glúmsstaðir II
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurgerð á 5,6 km kafla á Múlavegi í Fljótsdal á Fljótsdalshéraði.
Helstu magntölur eru:
| Fylling úr skeringum | 20.200 | m3 |
| Neðra burðarlag | 12.000 | m3 |
| Efra burðarlag | 2.300 | m3 |
| Tvöföld klæðing | 25.000 | m2 |
| Frágangur fláa | 25.000 | m2 |
Verki skal að fullu lokið 1. júlí 2011.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Búðareyri 11 á Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 14. júní 2010. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 29. júní 2010 og verða þau opnuð þar kl.. 14:15 sama dag.

