Reykjanesbraut (41), hringtorg við Grænás
Vegagerðin og Reykjanesbær óska eftir tilboðum í gerð hringtorgs ásamt aðlögun aðliggjandi vega á gatnamótum Reykjanesbrautar og Grænásvegar / Grænásbrautar í Reykjanesbæ. Framkvæmdin innifelur einnig að annast tilgreinda verkþætti við aðlögun eða flutning núverandi lagna s.s. ljósleiðara-, háspennu-, lágspennu- og sjónvarpsstrengja í vegunum í samráði við veitur ásamt nauðsynlegri landmótun.
Helstu magntölur veghluta eru:
| Skering í laus jarðlög | 1000 | m3 |
| Fylling og fláafleygar | 1100 | m3 |
| Burðarlag | 3.600 | m3 |
| Malbik | 8000 | m2 |
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 30. september 2010.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 8. júní 2010. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. júní 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

