Auglýst útboð
Lagfæringar vega við Markarfljótsbrú
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í lagfæringu á um 900 m kafla Hringvegar (1) austan Markarfljótsbrúar og lítils hlutar Þórsmerkurvegar ásamt bílaplani við gatnamótin.
Helstu magntölur eru:
| Fylling | 1.050 | m3 |
| Fláafleygar | 1.230 | m3 |
| Burðarlag | 3.635 | m3 |
| Netgirðingar | 2.300 | m |
| Tvöföld klæðing | 10.185 | m2 |
| Frágangur fláa | 7.580 | m2 |
Verkinu skal að fullu lokið 1. september 2010, þó skal fyrra lag klæðingar komið á fyrir 28. júlí 2010.
Útboðsgögnin verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með mánudeginum 7. júní 2010. Verð útboðsgagna er 4.000 kr. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. júní 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

