Auglýst útboð
Yfirlagnir á Norðaustursvæði 2010, malbik á Akureyri
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með malbiki á Akureyri.
Helstu magntölur eru:
| Yfirlögn með malbiki | 13.800 | m2 |
| Malbik | 1.060 | tonn |
Verkinu skal að fullu lokið 1. september 2010.
Útboðsgögnin verða seld hjá Vegagerðinni Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með mánudeginum 7. júní 2010. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. júní 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

