Auglýst útboð
Hafnarfjarðarvegur (40), aðreinar
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í lengingu aðreinar frá Digranesvegi í Kópavogi inn á Hafnarfjarðarveg með gerð vasa fyrir strætisvagna. Einnig staðbundna breikkun Arnarnesvegar á vegamótum Hafnarfjarðarvegar ásamt hægribeygju framhjáhlaupi, lengingu vasa fyrir strætisvagna og breytingu umferðarljósa. Í verkefninu felst enn fremur aðlögun og breyting lagna og veglýsingar ásamt landmótun.Helstu magntölur veghluta eru:
| Skering í laus jarðlög | 785 | m3 |
| Fylling og fláafleygar | 70 | m3 |
| Burðarlag | 1.125 | m3 |
| Malbik | 3.398 | m2 |
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. september 2010.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 8. júní 2010. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. júní 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

