Auglýst útboð

Hringvegur (1) um Fjarðará í Lóni

1.6.2010

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu á um 300 m kafla Hringvegar (1) um Fjarðará í Lóni. Í Fjarðará á að setja 2 stk. stálplöturæsi; 4 m x 7 m, hvort um sig 36 m langt.

Helstu magntölur eru:

Stálplöturæsi

72

m

Steypa

120

m3

Grjótvörn

1.120

m3

Burðarlag

2.200

m3

Tvöföld klæðing

2.000

m2

Frágangur fláa

4.230

m2

Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2010.

Útboðsgögnin verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með þriðjudeginum 25. maí 2010. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 8. júní 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.





Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica