Auglýst útboð

Kringlumýrarbraut (40), rampi og undirgöng við Bústaðaveg

1.6.2010

Vegagerðin og Reykjavíkurborg óska eftir tilboðum í breikkun rampa og gerð undirganga suðvestan mislægra gatnamóta Kringlumýrarbrautar og Bústaðavegar.

Verkið felst m.a. í breikkun og aðlögun rampans, gerð staðsteyptra undirganga fyrir gangandi vegfarendur undir hann ásamt tengdum stoðveggjum, breytingu veitukerfa, aðlögun göngustíga að undirgöngunum, gerð nýrra göngustíga, aðlögun hljóðmana, landmótunar og lýsingar.

Helstu magntölur:

Skering í laus jarðlög

7.300

Bergskering

420

Fyllingarefni og burðarlög úr námum

1.200

Malbikaðir og hellulagðir göngustígar

770

Mótafletir undirganga og stoðveggja

1.000

Steypustyrktarstál

20.500

kg

Steinsteypa

210

Umferð skal vera kominn á rampann að nýju eigi síðar en 20. ágúst 2010. Verkinu að fullu lokið 1. nóvember 2010.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 18. maí 2010.  Verð útboðsgagna er 4.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 1. júní 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag





Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica