Auglýst útboð
Efnisvinnsla á Norðurlandi vestra 2010
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í efnisvinnslu á Norðurlandi vestra árið 2010. Malað verður í 7 námum, samtals 27.000 m3 og skiptist efnið í eftirtalda efnisflokka:
|
Efni í malarslitlag |
13.000 |
m3 |
|
Efni í burðarlag |
10.000 |
m3 |
|
Efni í klæðingu |
3.000 |
m3 |
|
Úrharp |
1.000 |
m3 |
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. september 2010.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi, Borgarsíðu 8 á Sauðárkróki og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með 10. maí 2010. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 26.maí 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.
