Auglýst útboð

Yfirlagnir á Suðursvæði og Suðvestursvæði 2010, klæðing

19.4.2010

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með klæðingu á Suðursvæði og Suðvestursvæði árið 2010. Heildarlengd yfirlagna er u.þ.b. 46 km.

Helstu magntölur eru:

Yfirlagnir, klæðing (K1), með flokkaðri möl                  24.000     m²

Yfirlagnir, klæðing (K1), án efnis                                261.000     m²

Hjólfarafylling, klæðing (K1), án efnis                            40.000     m²

Klæðing, bindi og viðloðunarefni                                       590     tonn

Verklok eru 1. september 2010.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 19 apríl 2010. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. maí 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.





Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica