Auglýst útboð

Hringvegur (1) - tvöföldun, Hafravatnsvegur - Þingvallavegur

15.3.2010

Vegagerðin og Mosfellsbær óska eftir tilboðum í tvöföldun Hringvegar (1) milli Hafravatnsvegar og Þingvallavegar. Í verkinu felst auk þess stækkun hringtorgs við Álafossveg, lenging undirganga fyrir göngu-, hjólreiða- og reiðfólk við Varmá, lengingu stálbogaundirganga fyrir göngu- og hjólreiðafólk í Ullarnesbrekku, breikkun brúar yfir Varmá, gerð reið-, göngu- og hjólreiðastíga meðfram Hringvegi(1) ásamt gerð hljóðmana austan Vesturlandsvegar.

Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Mosfellsbæjar.

Helstu magntölur eru:

- Veghluti

Skering í laus jarðlög

36.000

m3

Fláafleygar og manir

23.000

m3

Fyllingarefni úr námum

15.300

m3

Neðra burðarlag

12.000

m3

Efra burðarlag

3.500

m3

Malbik

36.000

m2

- Steypt mannvirki

Mótafletir

800

m2

Steypustyrktarjárn

29.000

kg

Steinsteypa

220

m3

-  Undirgöng

Heitgalvaniseraðar plötur

7.840

kg

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 30. september 2011.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 16. mars 2010. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 7. apríl 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.





Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica