Hringvegur (1) - tvöföldun, Fossvellir - Draugahlíðar
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í tvöföldun og breikkun Hringvegar frá Fossvöllum í Lögbergsbrekku, ofan við Lækjarbotna, að Draugahlíðarbrekku austan við Litlu kaffistofuna. Lengd útboðskaflans er um 6,5 km. Að vestan tengist vegkaflinn núverandi þriggja akreina vegi upp Lögbergsbrekku og að austan tengist vegurinn núverandi þriggja akreina vegi um Svínahraun. Um er að ræða tvöföldun á stærstum hluta útboðskaflans en breikkun í þriggja akreina veg á hluta hans. Auk þess eru innifaldar í útboðinu breytingar á núverandi vegamótum við Bláfjallaveg, Bolaölduveg og við Litlu kaffistofuna. Þá skal gera undirgöng fyrir gangandi og ríðandi umferð vestan við Litlu kaffistofuna og breikka núverandi brú á Fóelluvötn á Sandskeiði.
Helstu magntölur eru:
|
Bergskering |
20.000 |
m3 |
|
Fylling og fláafleygar |
223.000 |
m3 |
|
Ferging |
32.000 |
m3 |
|
Neðra burðarlag |
62.000 |
m3 |
|
Efra burðarlag |
22.000 |
m3 |
|
Malbik |
119.000 |
m2 |
|
Vegrið |
6.100 |
m |
|
Umferðareyjar |
1.000 |
m2 |
|
Götulýsing, skurðgröftur |
3.300 |
m |
|
Ljósastaurar |
35 |
stk. |
|
Mót |
1.050 |
m3 |
|
Járnalögn |
38.000 |
kg |
|
Steypa |
290 |
m3 |
|
Lögn stálplöturæsis |
37 |
m |
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 30. september 2011.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudeginum 9. mars 2010. Verð útboðsgagna er 10.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. apríl 2010 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.
Verkið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

