Auglýst útboð

Hringvegur (1) á Kjalarnesi, undirgöng við Grundarhverfi

Vegagerðin og Reykjavíkurborg óska eftir tilboðum í verkið „Hringvegur (1) á Kjalarnesi, undirgöng við Grundarhverfi“. Um er að ræða gerð stálbogaundirganga undir Hringveginn við Grundarhverfi á Kjalarnesi ásamt gerð göngustíga við göngin að Klébergsskóla. Einnig gerð bráðabirgðavegar, ýmsa lagnavinnu, lýsingu og tilheyrandi landmótun.

Helstu magntölur eru:

Lögn stálbogaganga

23

m

Fylling og burðarlag

5000

m3

Malbik

1900

m2

Ofanvatnsræsi

75

m

Umferð skal vera komin aftur á Hringveginn þann 15. desember 2009 og verkinu síðan að fullu lokið þann 1. maí 2010.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 21. september 2009. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 6. október 2009 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.



 

 

Stoðval


Text Size Controls

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.