Auglýst útboð

Festun og yfirlögn á Norðaustursvæði 2009-2010

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í festun með froðubiki og lögn tvöfaldrar klæðingar á Norðaustursvæði 2009-2010. Um er að ræða 8 vegkafla, alls um 16,4 km.

Helstu magntölur eru:

Festun með froðubiki

112.600

m2

Tvöföld klæðing

112.600

m2

Verki skal að fullu lokið 1. ágúst 2010.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði, Miðhúsavegi 1 á  Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 15. júní 2009. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 30. júní 2009 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.





Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica