Auglýst útboð
Hringvegur (1), brú á Ystu Rjúkandi
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í að byggja brú á Ystu Rjúkandi sem er á Hringvegi á Jökuldal í Norður-Múlasýslu. Brúin er steypt, eftirspennt bitabrú í einu hafi, 24 m að lengd og 9,5 m að breidd. Þegar nýja brúin hefur verið tekin í notkun skal rífa núverandi brú. Jafnframt á að byggja um 900 m langan veg sem tengir nýju brúna við Hringveginn.
Helstu magntölur eru:
Vegur:
|
Fylling |
6.500 |
m3 |
|
Fláafleygar |
4.100 |
m3 |
|
Ræsalögn |
75 |
m |
|
Neðra burðarlag |
7.100 |
m3 |
|
Efra burðarlag |
2.180 |
m3 |
|
Tvöföld klæðing |
7.500 |
m2 |
Brú:
|
Mótafletir |
1.324 |
m2 |
|
Slakbent járnalögn |
37,8 |
t |
|
Eftirspennt járnalögn |
2,5 |
t |
|
Steypa |
382 |
m3 |
Rif á núverandi brú:
|
Steypa |
215 |
m3 |
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. desember 2009.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Miðhúsavegi 1 á Akureyri, Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 18. maí 2009. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 2. júní 2009 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.
