Auglýst útboð

Arnarnesvegur (411), Reykjanesbraut - Fífuhvammsvegur (Útboði frestað)

11.5.2009

Ákveðið hefur verið að fresta útboði á verkinu Arnarnesvegi (411), Reykjanesbraut - Fífuhvammsvegur um óákveðin tíma.

Vegagerðin og Kópavogsbær óska eftir tilboðum í gerð Arnarnesvegar (411), milli Reykjanesbrautar og Fífuhvammsvegar. Verkið felst í gerð Arnarnesvegar frá nýjum mislægum gatnamótum við Reykjanesbraut og austur fyrir Fífuhvammsveg, samtals 1.800 m. Vegurinn er tvær akbrautir og milli þeirra 3 m breiður miðdeilir með vegriði báðum megin hans. Á vegkaflanum skal gera fern gatnamót og byggja skal fjögur steypt undirgöng auk göngubrúar úr stáli. Einnig skal setja upp veglýsingu, umferðarljós, gera stíga, landmótun, hljóðvarnir og annað sem nauðsynlegt er til að ljúka verkinu.

Um svæðið liggja tveir háspennustrengir, 132kV og 11kV. Strengina þarf að færa til og endurleggja í samvinnu við OR. Einnig skal leggja nýja stofnlögn hitaveitu auk ídráttarröra og strengja.

Helstu magntölur eru:

Skering

171.000

m3

Bergskering

72.000

m3

Fylling

223.000

m3

Neðra burðarlag

26.000

m3

Efra burðarlag

10.000

m3

Malbik

41.000

m2

Gangstígar

8.500

m2

Frágangur fláa

93.500

m2

Mótafletir

2.700

m2

Járnalögn

55.000

kg

Steinsteypa

680

m3

Stálvirki, smíði

32,67

kg

Verkinu skal að fullu lokið fyrir 30. ágúst 2010.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 11. maí 2009. Verð útboðsgagna er 8.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 23. júní 2009 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

Verkið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.



Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica