Auglýst útboð
Yfirlagnir á Suðursvæði 2009, malbik
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir á Suðursvæði 2009, með malbiki.
Helstu magntölur eru:
|
Malbik |
5.600 |
tonn |
|
Útlögn |
45.200 |
m² |
Verki skal að fullu lokið 1. júlí 2009.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfoss og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 4. maí 2009. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. maí 2009 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

