Auglýst útboð

Brú á Hvítá á Bræðratunguvegi, eftirlit

27.4.2009

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í eftirlit með byggingu brúar á Hvítá á Bræðratunguvegi (359), milli Skeiða- og Hrunamannavegar og Biskupstungnabrautar. Verkið felur í sér eftirlit með byggingu 270 m langrar eftirsteyptrar bitabrúar í sex höfum með heildarbreidd 10 m. Gert er ráð fyrir að brúin verði byggð í tveimur hlutum og að Hvítá verði haldið utan vinnusvæðis á byggingartímanum.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist sumarið 2009 og að verklok við brúarsmíði verði að hausti 2010.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 27. apríl 2009. Verð útboðsgagna er  4.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. maí 2009 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.





Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica