Hringvegur (1), Litla-Sandfell - Haugaá
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð Hringvegar í Skriðdal, frá Litla-Sandfelli að Haugaá. Vegurinn verður um 11 km langur, þar af 6,3 km nýbygging og 4,7 km endurbygging á núverandi vegi. Byggja á þrjár brýr: á Þórisá lengd 10 m, á Eyrarteigsá lengd 14 m og á Jóku lengd 32 m.
Helstu magntölur eru:
Vegur:
|
Bergskering |
700 |
m3 |
|
Fylling |
114.000 |
m3 |
|
Fláafleygar |
25.000 |
m3 |
|
Ræsalögn |
751 |
m |
|
Neðra burðarlag |
87.700 |
m3 |
|
Efra burðarlag |
18.700 |
m3 |
|
Tvöföld klæðing |
82.300 |
m2 |
Brúa á Þórisá
|
Mótafletir |
671 |
m2 |
|
Steypustyrktarjárn |
18,3 |
t |
|
Steypa |
207 |
m3 |
|
Staurar |
38 |
stk. |
Brú á Eyrarteigsá
|
Mótafletir |
628 |
m2 |
|
Steypustyrktarjárn |
18,7 |
t |
|
Steypa |
197 |
m3 |
|
Staurar |
36 |
stk. |
Brú á Jóku
|
Mótafletir |
1.170 |
m2 |
|
Steypustyrktarjárn |
32,2 |
t |
|
Steypa |
385 |
m3 |
|
Staurar |
36 |
stk. |
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. ágúst 2011.
Útboðsgögnin eru seld hjá Vegagerðinni Miðhúsavegi 1 á Akureyri, Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með miðvikudeginum 29. apríl 2009. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. maí 2009 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.
