Hvammstangavegur (72), um Hvammstanga
Vegagerðin og Húnaþing vestra óska eftir tilboðum í endurbætur á Hvammstangavegi (72), í gegnum Hvammstanga á um 1320 m kafla. Hluti verksins er endurnýjun fráveitulagnar og stofnlagnar vatnsveitu.
Helstu magntölur eru:
|
Ónothæfu efni ekið á losunarstað |
2.200 |
m3 |
|
Burðarlag |
1.800 |
m3 |
|
Einföld klæðing |
2.500 |
m2 |
|
Stungumalbik |
8.500 |
m2 |
|
Fínfræsun stungumalbiks |
2.800 |
m2 |
|
Sögun malbiks |
2.400 |
m2 |
|
Steyptar gangstéttar |
610 |
m2 |
|
Kantsteinar |
790 |
m |
|
Eyjar með steinlögðu yfirborði |
100 |
m2 |
|
Gröftur lagnaskurða |
720 |
m |
|
Endurnýjun fráveitulagnar |
40 |
m |
|
Endurnýjun vatnslagnar |
540 |
m |
Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2009.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Dagverðardal á Ísafirði, Borgarsíðu 8 á Sauðárkróki og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 20. apríl 2009. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl 14:00 þriðjudaginn 5. maí 2009 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

