Raufarhafnarvegur (874), Hófaskarðsleið - Flugvöllur
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í nýbyggingu Raufarhafnarvegar á um 14,1 km löngum kafla, frá Hófaskarðsleið að Raufarhafnarflugvelli.
Helstu magntölur eru:
|
Bergskering |
10.800 |
m3 |
|
Önnur skering |
76.500 |
m3 |
|
Fylling |
212.500 |
m3 |
|
Fláafleygar |
47.700 |
m3 |
|
Ræsalögn |
142 |
m |
|
Endafrágangur ræsa |
10 |
stk. |
|
Neðra burðarlag |
40.100 |
m3 |
|
Efra burðarlag |
22.300 |
m3 |
|
Tvöföld klæðing |
97.700 |
m2 |
|
Girðingar |
19.200 |
m |
Lagningu slitlags á Raufarhafnarveg skal lokið fyrir 15. ágúst 2010. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. október 2010.
Útboðsgögnin verða seld hjá Vegagerðinni Miðhúsavegi 1 á Akureyri, Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 23. mars 2009. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 15. apríl 2009 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

