Auglýst útboð
Efnisvinnsla Norðvestursvæði, Bitrufjörður
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í efnisvinnslu í Bitrufirði á Ströndum. Um er að ræða mölun á efra burðarlagsefni og klæðingarefni í einni námu.
Helstu magntölur eru:
|
Efni í efra burðarlag |
16.000 |
m3 |
|
Efni í klæðingu |
2.600 |
m3 |
|
Grjótnám á opnum svæðum |
14.500 |
m3 |
Verkinu skal að fullu lokið 15. júlí 2009.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Dagverðardal á Ísafirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 23. mars 2009.
Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl 14:00 þriðjudaginn 7. apríl og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.
