Auglýst útboð

Bræðratunguvegur (359), Flúðir - Tungufljót

23.3.2009

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð Bræðratunguvegar (359), milli Skeiða- og Hrunamannavegar og Biskupstungnabrautar. Verkið felst í lögn Bræðratunguvegar á 7,2 km löngum kafla og 1,2 km löngum tengingum við hann. Verkið felur einnig í sér smíði 270 m langrar steyptar bitabrúar yfir Hvítá og gerð leiðigarða.

Helstu magntölur eru:

-Vegagerð

Fylling ásamt áætluðu sigi

293.000

 m3

Bergskering, sprengingar

144.000

 m3

Neðra burðarlag

  36.000

 m3

Efra burðarlag

  13.000

 m3

Tvöföld klæðing

  58.000

 m2

Frágangur fláa

161.000

 m2

Rofvarnir á leiðigarða og fyllingar

  10.000

 m3

 -Brú

Smíði niðurrekstarstaura

2.304

m

Gröftur fyrir sökklum

1.500

m3

Mótafletir

6.174

m2

Slakbent járnlögn

174.341

kg

Spennt járnalögn

78.500

kg

Steypa

4.158

m3

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. júní 2011.

Útboðsgögnin verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 23. mars 2009. Verð útboðsgagna er 10.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. maí 2009 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.

Útboðið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.





Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica