Auglýst útboð

Álftanesvegur (415), Hafnarfjarðarvegur - Bessastaðavegur, eftirlit

20.3.2009

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í eftirlit með gerð Álftanesvegar. Verkið felst í því að leggja nýjan 4 km langan veg frá Engidal að Bessastaðavegi. Gera skal mislæg gatnamót ásamt að- og fráreinum við Hraunsholt í Engidal, byggja tvenn göng fyrir gangandi umferð og gera hringtorg við Bessastaðaveg. Breyta skal legu strengja, vatns- og hitaveitulagna. Þá á að leggja nýja háspennu- og rafdreifistrengi, síma-, vatns-, og hitaveitulagnir. Einnig fylgir með í verkinu landmótun, sáning og yfirborðsjöfnun hrauns innan verksvæðisins.

Verkið skiptist í 3 verkáfanga með nokkrum millidagsetningum; 1. áfanga á að vera lokið þann 1. desember 2009, 2. áfanga þann 1. ágúst 2010 og 3. áfanga og þar með verkinu í heild 31. ágúst 2010.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnivals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 16. mars 2009. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 31. mars 2009 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag og lesið upp hverjir hafa skilað inn tilboðum.

Síðari opnunarfundur verður þriðjudaginn 7. apríl 2009,  kl.14:15, þar sem lesnar verðar upp einkunnir bjóðenda í hæfnimati og verðtilboð opnuð



Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica