Auglýst útboð
Álftanesvegur (415), Hafnarfjarðarvegur - Bessastaðavegur
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð Álftanesvegar (415), milli Hafnarfjarðarvegar og Bessastaðavegar. Verkið felst í því að leggja nýjan 4 km langan veg frá Engidal að Bessastaðavegi. Gera skal mislæg gatnamót ásamt að- og fráreinum við Hraunsholt í Engidal, byggja tvenn göng fyrir gangandi umferð og gera hringtorg við Bessastaðaveg. Breyta skal legu strengja, vatns- og hitaveitulagna. Þá á að leggja nýja háspennu- og rafdreifistrengi, síma-, vatns-, og hitaveitulagnir. Einnig fylgir með í verkinu landmótun, sáning og yfirborðsjöfnun hrauns innan verksvæðisins.
Helstu magntölur eru:
|
Skering |
60.000 |
m3 |
|
Fylling |
76.000 |
m3 |
|
Neðra burðarlag |
30.000 |
m3 |
|
Efra burðarlag |
13.500 |
|
|
Malbik |
59.000 |
m2 |
|
Gangstígar |
4.500 |
m2 |
|
Mótafletir |
2.700 |
m2 |
|
Steypustyrktarstál |
87.000 |
kg |
|
Steinsteypa |
1.120 |
m3 |
|
Eftirspennt járnalögn |
5.300 |
kg |
Verkið skiptist í 3 verkáfanga með nokkrum millidagsetningum; 1. áfanga á að vera lokið þann 1. desember 2009, 2. áfanga þann 1. ágúst 2010 og 3. áfanga og þar með verkinu í heild 31. ágúst 2010.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með fimmtudeginum 26. febrúar 2009. Verð útboðsgagna er 8.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. apríl 2009 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.
Verkið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
