Auglýst útboð

Norðausturvegur (85), Bunguflói - Vopnafjörður

2.2.2009

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð Norðausturvegar, frá Bunguflóa að Vopnafirði og hluta Hofsárdalsvegar. Norðausturvegur verður um 30,4 km langur og liggur frá Bunguflóa, um Vesturárdal að þéttbýlinu á Vopnafirði. Hofsárdalsvegur (920), liggur frá nýja Norðausturveginum í Vesturárdal yfir að Árhvammi í Hofsárdal, og verður hann 6,8 km langur. Endurbæta þarf 0,85 km af Skógavegi (914), frá Vesturárdalsvegi vestur fyrir tengingu við Torfastaðaveg. Nýjar tengingar verða um 1,6 km að lengd.

Helstu magntölur eru:

Bergskering

15.400

m3

Önnur skering

398.800

m3

Fylling + sig

678.800

m3

Fláafleygar

178.000

m3

Ræsalögn

3.844

m

Endafrágangur ræsa

246

stk.

Neðra burðarlag

169.700

m3

Efra burðarlag

62.000

m3

Einföld klæðing

556.000

m2

Lagningu slitlags á Norðausturveg skal lokið fyrir 15. ágúst 2011.

Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. nóvember 2012.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Miðhúsavegi 1 á Akureyri, Búðareyri 11-13 á  Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með 5. febrúar 2009. Verð útboðsgagna er 8.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 24. mars 2009 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.

Verkið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.





Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica